26febrúar

hejsan

26. Febrúar 2007.

Tímin flýgur þegar gaman er.
nú er aðeins nokkrir dagar þangað til febrúar líður undir lok og mars tekur við, stundum, eins og núna finnst mér tímin vera fljúga frá okkur, ekkert hægt að gera annað en að fljóta með.  þegar ég bloggaði þetta þá var enn febrúar og mun þetta vera gott dæmi um hversu góðan tíma ég tek í að gera hlutina... :D

Ég hef sagt mörgum ykkar að ég komi heim í endan á juní, en ég ákvað að framlengja dvöl minni hér og koma heim í byrjun ágústs, ástæðan er sú að ég hef ekkert til að koma heim, þar að segja hvorki skóli né vinna. þannig að afhverju ekki bara njóta sumarsins hér, þar sem ég get varla sagt að ég hafi upplifað alvöru sumar..
ég mun vera ein hér úti í 3. vikur meðan þau eru á íslandi, en mamma og pabbi eru að spá í að koma í nokkra daga og halda mér félagsskap, en hver veit nema eitthvað af íslensku vinum mínum skildu ákveða að skella sér í heimsókn til mín, ha?? hvað segiiði stelpur?? Steinunn og Aldís, eigum við að sleppa london og setjast að í heitapottinum á pallinum með bjór í hönd, ánægðar eftir góða verslunar ferð ( gæti þetta hljómað eitthvað betra?)

en Anna Lauga ef það vildi svo til að þú skildir skoða bloggið mitt, þá vildi ég bara að segja þér að fyrsta sem eg mun gera þegar ég kem á ísland er að leita þig uppi og hafa eitt svona vidjo/bjórkvöld með þér, bæta upp glataðan tíma...

cino4 er bíóið sem eg fór á um helgina, eins og ég var búin að minnast á þá var þetta ekkert venjulegt bíó, heldur í 3-vidd, salurinn upplifið myndina.. mjög fróðlegt og skemmtilegt, og mæli ég alveg með þessu, maður getur eytt tímanum og peningunum í margt annað vitlausara...

Í gær þá var ég að vafra um á netinu og var að skoða hestasíðuna 847.is og sá að
Ice Capades sem er frægasta sýning allra tíma sem fram fer á ís og að öllum líkindum þekktasta sýning í heimi. hafði gert samning við íslensku hesta sýninguna Icelandics on Ice. Samningurinn felur í sér að Icelandics on Ice tekur þátt í yfir eitthundrað sýningum í Bandaríkjunum með Ice Capades næsta vetur.
hugsið ykkur hvað þetta er góð auglýsing fyrir ísland og sérstaklega íslenska hestina, þar sem ekki hefur verið auðvelt að kynna hann/ markaðsetja hann í bandaríkjunum, vegna fjölda hestategunda og stærðs hans. Ég mundi segja að þetta væri ein sú besta auglýsing sem við gætum fengið... http://www.847.is/

en um daginn, lenti ég í smá vinkonu vandræðum, eins og margir þekkja þá er það langt frá því að vera skemmtilegt og oft á tíðum mjög erfitt þar sem við erum að tala um vini, sem maður vill alls ekki missa og því verður að vanda mál sitt vel, til að koma í veg fyrir misskilning..
en ég get sagt ykkur, af reynslu minni, að hreinsskilni er langt um best, stundum erfið en hún er best til lengri tima litið, já og passa drykkjuna, þar sem hún er oft á tíðum, uppspreta vandamálsins, maður bregst vitlaust við hlutum, og segjir hlutina vitlaust og á vitlausan hátt..

lífið er yndislegt hjá mér þessa dagana, í augnablikinu er ég einstæð móðir í bókstaflegri merkingu, ásdís stakk af á ráðstefnu í útlöndum og Demir hefur ekki sést hér heima að sökum annríkis í vinnunni ( vel orðað:S) en við börnin njótum okkar betur en nokkurn tíman...

nú hef ég ákveðið að taka sjálfa mig á, og frá og með morgundeginum, mun ég fara út að ganga minsta kosti 3x í viku og ekkert óhollt  mun fara inn fyrir mínar varir næsta mánuðinn ( smá svigrum um helgar) vil líta vel út fyrir tyrkland..

hej da allihopa

en eitt enn..
bakkaborgarskvísur hvernig væri að við tækjum frá eina helgi í haust og skelltum okkur norður í sagafjörð í sumarbústað, hljómar vel er það ekki, þannig að nú er bara að fara skoða þetta hvernig þetta verður, fá pössun stelpur og skella sér:D Anna lauga spurði hvort fylgihluturinn mætti fylgja með, eg sagði að við yrðum bara að skoða það, en sama hvort makar kæmu með eða ekki þá yrði þetta alveg ógleymanleg helgi, aldís gæti kennt okkur danstakta frá ecvador, þar að segja ef hún kemur ekki bara heim með danskennarann sinn ( hann er skilst mér býsna mikið augnayndi:D)  hugsið um þetta stelpur mínar og ekki gleyma síðunni okkar... :D
kv : Lilja appelsínugula
26. febrúar 2007 klukkan 20:55
Lilja Dögg Tryggvadóttir
6 athugasemdir
22febrúar

Sigurinn tilheyrir ţeim sem neita ađ gefast upp

21. febrúar 2007..
þann merkisdag átti systir mín afmæli og varð hún 13. ára, loksins orðin tjáningur...og ég besta systir sem finnst, gleymdi afmælinu hennar, sorry guðrún mín... vona að þú hafir átt góðan dag - lov'ya

Sigurinn tilheyrir þeim sem neita að gefast upp - ég hef komist af því að það borgar sig að klára það sem maður byrjar á.. eða svo segjir mamma og ég hef komist að því að mamma mín er bara býsna klár kona... :*)

Ég var um dagin að tala við gamla frænku mína og fyrsta sem ég er spurð af, hvernig ástarmálin mín standa... og ég alveg HAA hvað meinaru, viltu vita hvort ég eigi kærasta, hvort ég eigi vini eða hvað.... ég sagði bara nett að þetta væri allt í vinslu og endaði á því að segja að hún yrði sko fyrst til að frétta að ég væri komin með kærasta.. hehe afhverju er þetta ein algeingasta spurningin í samræðum við frændfólk og vini, eru þau svona despret að koma mér út eða vorkenna mömmu og pabba að sitja uppi með mig, halda að ég eigi eftir að pipra, hvað haldið þið?? á eg eftir að vera kattarkona, ein með 50. ketti og kóngulóavef í hárinu??
en hvað það sem það er þá verða stefnir allt á það... hehe nei segji svona, en eg er ekki með neinn í takinu í augnablikinu en hver veit - hún er ung og leikur sér...

Ég hef mikið verið að spá í framtíðina að undanförnu, hvað ég ætla að verða, hvað ég þyrfti að læra og hversu langan tíma allt tæki.. en svo fattaði ég það að ég hef ekki hugmynd um hvað ég gæti hugsað mér sem framtíðar starf..
en ég man öll störfin sem ég vildi, öll plönin mín, hehe. þau voru, flugmaður ( þegar ég var á leikskóla aldri), dýralæknir ( á unglingsárunum) Sögukennari ( á eldri unglingsárunum) en hver veit hvað verður, mér langar að klára framhaldsskólan, fara í hólaskóla og svo í háskóla, en læra hvað er seinni tíma vandamál, þar sem eg hef ekki enn fundið köllun mína.... en er opin fyrir öllum hugmyndum en hef þó ákveðið að hafa ofangreinda settningu sem lífsmóttó...
 - sigurinn tilheyrir þeim sem neita að gefast upp -

vetur er alls ráðandi hér í svíþjóð um þessar mundir, snjór og kuldi er það sem mætir manni þegar maður hættir sér útfyrir, ég hélt í dag að puttarnir myndi í alvörunni detta af mér, eg var hætt að finna fyrir þeim ( smá ýkjur :*) en það er samt alveg viðbjóðslega kalt hér, get ekki beðið eftir sumrinu, sagt að sumrin hér í sviþjóð séu aðeins sól og blíða - hvað er það? kannast ekki við það á íslandi, aðeins rok og rigningu...:*) en eg verð hér í svíþjóð framm í júlí að öllum líkindum og því ættli því að fá smá sýnishorn af sænsku sumri og það slatt af því, þar sem sumarið hér úti byrjar mun fyrr heldur en heima... en þrátt fyrir allan þennan kulda, þá kemst ekkert í líkindum við ísland, ísland er einfaldlega best..


en talandi um ísland, þá heyrði ég í Guðrúnu vinkonu um daginn og hún var að segja mér að hún og Gunnar kærasti hennar væru farin að búa saman, ég vildi bara óska þeim til hamingju með íbúðina og hlakka til að kíkja í heimsókn til þeirra í sumar, þótt þetta eigi ekki eftir að jafnast við að koma í  heimsókn til mömmu hennar, kleinur og hveitikökur, nýbakað...namm... ég elska að koma í heimsókn til Siddýar, enda hef ég eytt þar dágóðum hluta ævi minnar, þetta var á sínum tíma mitt annað heimili og stundum held ég að þetta hafi verið mitt aðal heimili... hehe veit ekki á hvor staðnum ég hafi verið meira þar eða heima... Þetta voru góðir og eftir mynnilegir tímar.

næstu vikur eru ekki í verri endanum hjá mér, næsta laugardag er ég og fjölskyldan mín hér að fara í bíó, ekkert venjulegt bíó, þannig verður það að ef rignir í myndinni, þá rignir einnig í salnum, ef það er vindur eða rok þá er einnig vindur og rok í salnum, við upplifum það helsta með þeim, býstna flott ekki satt, svo á sunnudaginn er ég og sara litla að fara á hestbak, nýta lottóvinningin minn, mér er farið að hlakka býsna til að komast á hestbak. svo er það allra besta ég er að fara til tyrklands þann 21. mars fer á miðvikudegi og kem aftur á sunnudegi, þetta mun verða svona löng helgarferð.. ójá elskan.. en eg get samt ekki annað en verið afbrýðissöm útí Margréti, því á morgun munu mamma henner, bróðir, frænka og frændi vera hér úti hjá henni, í helgarferð...ég væri svo meira en til í það að mamma og pabbi væru hér... en hver veit kannski þau komi hingað í sumar og ég hef boðið mig fram sem leiðsögumann, en pabbi mintist samt eitthvað á það að það væri örugglega ekkert svo dýrt að leigja bara einn ( humm... hvernig ætti ég að taka þessu.. hehe ) en eg get æft mig á Ásdís Öddu ef hún kemur, ég lofaði henni að vera þolinmóð, en geri lítið annað en finna og ákveða staði sem ég gæti sýnt henni, sorry Ásdís mín þú verður bara ða koma... Ávalt velkomin... mitt casa er þitt casa ( hehe þið skiljið hvað ég meina)

en ég held að þetta sé komið nóg hjá mér í bili, ég sagði að það væru komnar inn nýjar myndir, en það var ekki alveg rétt hjá mér, þær týndust einhverstaðar á leiðinni, þannig að ég er að vinna í því að setja þær inn...

                                                                        sæl að sinni - Lilja Dögg

22. febrúar 2007 klukkan 22:10
Lilja Dögg Tryggvadóttir
Engin athugasemd
19febrúar

Ţessi fćrsla er lćst međ lykilorđi.

19. febrúar 2007 klukkan 12:59
Lilja Dögg Tryggvadóttir
14febrúar

(L) Alla hjartansdag (L)

Til hamingju með daginn allir saman..  fyrir þá sem ekki vita þá er 14. febrúar, sem er valentínusardagur, dagur elskenda eða eins og sagt er hér úti alla hjartans dag.
Mér brá heldur betur þegar ég fór í búðina um dagin, hún var skreytt með rauðum blöðrum og hjörtum var dreift útum allt, þessu var ég ekki vön þannig ða ég fór að spyrjast fyrir og komst að því að hér í svíþjóð þá er haldið uppá þetta, það eru sendar ástarkveðjur, konfekt keypt og rósir gefnar.. það er gaman að fá að upplyfa þetta þar sem þetta er ekki svona á íslandi, en það hefði þó verið skemmtilegra að upplifa þetta með einhverjum sem maður elskar. en sleppur í þetta sinn...

Ég er komin aftur, ég týndist í smá tíma, en eg er loksins komin aftur sem ég, Lilja Dögg Tryggvadóttir. ég talaði við konuna sem ég bý hjá og það er allt komið á hreint okkar a milli, þannig að ekki búast við að sjá mig á klakanum fyrr en í júlí.. 
 
en þetta verður ekki lengra í bili.. ætla að fara syrgja samtalið sem ég var að fá um draumastarfið í útlöndum
14. febrúar 2007 klukkan 13:57
Lilja Dögg Tryggvadóttir
Engin athugasemd
01febrúar

Ţessi fćrsla er lćst međ lykilorđi.

01. febrúar 2007 klukkan 19:49
Lilja Dögg Tryggvadóttir
5 athugasemdir
29janúar

Janúar í hnotskurn...

heil og sæl vinir, kunningar, gestir og gangandi...

þetta er held ég alveg örugglega 5. tilraunin til koma bloggi frá mér núna á  aðeins 3. dögum eða svo, en nú er timin útrunnin og hér er eitt stykki blogg, hvernig það verður geta ekki lofað, en blogg verður það.. :D ( er það ekki það sem skiptir aðalmáli)

en eitt get ég sagt ykkur, ég er alveg svakalega ánægð að hafa þessa síðu hér, get sagt frá öllu sem ég vil og liggur á hjarta mínu , þar sem konan hér sem eg bý hjá sagði við mig um helgina, að hún væri mjög ánægð með mig, ( ekki annað hægt heldur) sagði að ég höndla aðstæður mjög vel miða við ungan aldur ( sko mína) , börnunum likaði mjög vel við mig ( nema þegar eg elda fisk.) og ég synti mínu starfi eins og ég á að gera ( sko mína..) nema svo endaði hún á að segja að ég væri sko búin að taka stakka skiptum síðan fyrir áramót, hún sæi sko stóran mun á mér, ég talaði ekki eins mikið um sjálfa mig núna...
eg bara ha...??? já henni fannst ég  tala ALLTOF mikið um sjálfa mig en væri farin að veita þeim mun meiri ath núna .. ( hvað er málið)  ég komst sem sagt að því, að til að fitta inní þessa fjölskyldu þá ætti ég ekki að tala um mig heldur aðeins um þau og aðeins það sem þau gera.... - ég ætti að geta það... 
þannig að hér eftir fáiði það sem liggur mér á hjarta beint í æð.. 

En smá pæling hér, er tímaleysi karla, eitthvað sem er þeim eðlistlegt eða er þeim kennt þetta í skóla?? í dag var mér tilkynnt að rafviktinn ætlaði að koma 8:30 ( mér var sagt þetta kl 9:30) og var hann þá strax orðin klst. of seinn.. en nei birtist karl ekki bara kl 11... skekkjumunurinn ekki nema 2 1/2 tími.... takið eftir EKKI NEMA
auðvitað er ég "stundum" sein en þetta er samt e-ð við karla, þeir eru allir bara of seinir...

en hér í svíðþjóð þá hef ég haft nógan tíma til að hugsa og sakna liðinna tíma..s.s.
* Einar... ( held að hann sé ekki lengur í tölu lifanda) 
- malta og prinspólórúntur með ásdísi öddu, james blunt runtur með Eydísi, tofffæru ferðirnar, skaffó planið og margt annað mynnisstætt...

* herbergi 216..
- ásdís og Eydís fluttar inn, stálu sundbolnum mínum/ gleraugunum og tóku myndir (póse) enskuverkefni með Guðrúnu og Fjólu Dögg, ( hljóð náttúrunnar geta verið skuggaleg) vidjó og ís með hörpu... vidjó með stefáni ( bakka á, beyglur)

* sófinn.
- sófangengið... alltaf til staðar...

* taka einn, og einn rúnt hring á skaffó planinu...

*mamma og pabbi
- knús

* stutmunnur...
- stelpur ykkar er sárt saknað... bláar maggarítur, staffaparty, NÍNA, skjaldbökur, smá djamm niðri bæ....

en ég held að ég sé hætt að rifja upp, áður en eg fæ heimþrá...:D

en til að halda mér frá heimþrá, þá hef ég klínt mér uppá 2. stelpuhnjátur sem bera nöfnin Margrét og Eva Lind, þær eins og ég ákváðu að leggja land undir fót og fresta gæfunar hér í svíjaríki,... en það besta við þær, er að þær segja ekkert ef ég tala of mikið um mig... hehe :D enda er inneignin frekar fljót að hverfa..
en við erum ekki bara búin að tala saman í gegnum síma heldur skelltum við okkur út að borða um daginn og ákváðum að kanna ´næturlífið  hér í stokkhólmi og tókst það ágætlega.. ég held samt að eg verði að prufa aftur, kannski nokkrum sinnum í viðbót... hehe - hvað haldið þið???
en síðan höfum við stofnað óformlega vidjóklúbb.  þar sem aðeins verður horft á franskar og sænskar myndir... lol...

en hvað ræktina varðar hefur hún algjörlega sitið á hakanum, eg hef ekki nennt að gera NEITT, eg held að eg verði að finna mér e-ð hobby... mér langar að prufa streetdans en þar sem eg hef ekki snefil af danshæfileikum í blóðinu þá held ég að eg verði að finna nýtt ekki nema eg fá mér blóð..?? hehe nei segji bara svona, dreg margréti og evu með mér... þá verð eg varla sú versta... hehe smá grín stelpur mínar en hvað segjiði um það... steetdans...???

en ætla að fara að grúska í gömlum myndaalbúmum af krökkunum ....

jæja hér er hafiði, liðna tíma og hugsanir í hnotskurn....
þangað til næst

                                                                             - Lilja sem talar aðeins um sjálfa sig

komnar inn myndir - í myndaalbúmi 2006 og dreift þar yfir... endilega skoðið
svo er eg einnig komin með spjallkubb.. ef einhverjir vilja spjalla

29. janúar 2007 klukkan 23:55
Lilja Dögg Tryggvadóttir
4 athugasemdir
09janúar

endalok 2006 og byrjun 2007

jæja fólk þá er komið að enn einnu blogginu og það er samt alltaf jafn erfitt að byrja þau... hehe þetta er eitt af því sem ekki virðist koma með æfingunni... en eg læt það ekki stoppa mig við að miðla minni reynslu og uppgvötum með ykkur...
það hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan ég skrifaði hér síðast,  jólin komu og fóru, nýtt ár gekk í garð og ég yfirgaf klakann í annað sinn...

* Þorláksmessa
- þeitingur útum allt, hitta mann og annan en aðalega að njóta þess að vera komin HEIM.

en það að komast heim var mikið meira en að segja það, eg sem sjaldan get haldið kjafti um e-ð mikið gat haldið mér saman um að ég ætlaði að koma heim degji fyrr en áætlað var, en neii það tókst sko aldeilis ekki..
- ég mætti á flugvöllinn á góðum tíma, ætlaði að sleppa við alla innritunarröðin, en mín komst bara að þvi að vélinni minni væri seinkað.. þannig ég þurfti að gjörasvo vel að húka á vellinum í 8 og 1/2 tíma, en ótrúlegt en sagt urðu þeir bara býsna skemmtilegir, ég s.s hitti aðra íslenska aupair á flugvellinum og tróð ég mér svona nett uppá hana þann tíma sem við vorum á vellinum, (býsna uppáþrengjandi) en það virtist ekki fá á hana heldur ætltuðum við að halda samband eftir að við kæmum heim.... Takk margrét.. þú gjörsamlega bjargaðir mér.  
.kannski ég eigi bara eftir að kinnast sænsku djammi... hehe eða allavegana djammi í svíðþjóð... en nóg af þessu aftur til jólana...
 
* aðfangadagur. 
spenning spenning spenning, of sein þangað og hingað, gleymi að afhenda nokkur jólakort - það verða sem sagt sumir sem fá jólakortin sín í ágúst....
jólabaðið sem varð að jólasturtu í ár vegna tímaskorts.. en svo kom þessi yndislegi matur og eftir hann kom ekki þessi yndislegi magaverkur af völdum ofáts en mín lét þetta ekkert á sig fá heldur var athyglinni beint að meira spennandi viðfangsefni - pökkunum.. og það á alls ekki við hjá mér orðrómurinn um að maður hætti að fá gjafir um og eftir fermingu... nei því ég hef sjaldan fengið jafn margar gjafir og í´ár- gafirnar vorumismunandi eins og þær voru margar og vil ég þakka öllum þeim sendu mér pakka eða kort. þetta var æðislegt og frábært að vera komin í faðm fjölskyldunnar aftur þó ekki nema í stuttan tíma... og því voru öll tækifæri nýtt að sameina fjölskylduna eins oft og hægt var og fór ekkert tækifæri til spillis, þannig að á aðfangadagskvöldi fórum við og borðuðum eftirrétt hjá Deindu og óla. og þá kom spennufallið í ljós eg varð ekkert smá þreytt þannig að mín lagði sig hjá karítas (2.ára)... voða fínar í jólakjólunum steinsofandi´inní herbergi...

* jóladagur var eins og iðulega nýttur undið uppsafnaða leti sem braust framm hjá allri minni family  en svo var skellt sér í jólaboð hjá ömmu of afa, sem var ekki eins og venjulega hvað matinn varðar,  já haldiði ekki að afi hafi bara farið og dustað rykiið af grillinu og steikinni skelt á ... og var þetta bara finasta kvöld

2. í jólum..
sá dagur byrjaði alls ekki vel, við fengum hræðilegar fréttir já hún amma mín í sveitinni varð svona fráveik þannig að við vorum í startholunum alla daginn og fleyri daga á eftir... en ég ákvað að það væri skárra að fara í jólaboðið til ALdísar heldur en bíða heima við siman, betra að bíða við siman hjá aldísi... en þetta jólaboð rættist heldur betur og skemmtum við Steinunn okkur heldur betur með fjölskyldunni hennar Aldísar ... hehe og ég varð heldur betur orðin vel ölvuð í lok kvöldsins og var farinn að kinna mig sem Steinunni vinkonu hennar steinunnar... lol en það var bara gaman.. eða alveg þangað til ég kom heim og vaknaði svo dagin eftir.... bjjööö...en ég tek það framm að hegðun mín er ekki á minni ábyrgð, nei heldu pabba - og bróðir aldísar já þar sem þeir voru býsna duglegir að fylla á glasið mitt ( aldrei tómt) shehe
en ég hlæ að þessu núna þó ég gerði það ekki þá...:D

milli jóla og nýárs þá var það bara eintóm leti út í geng og mér var svo þjónað framm og til baka.... en allir hafa gott á því af og til... svo skelltum við stellpurnar okkur í bíó á the holiday...og dróum mömmu með en  vá hvað eg varð ástfangin af jud law í þeirri mynd.. (draumaprinsinn) en taldandi um draumaprinsa þá fann vinkona mín ástina í einum afgreiðslu manninum á hressó þegar´við skelltum okkur þangað eftir myndina....

29. des..
smá djamm með stelpunum, takk stelpur mína fyrir gott kvöld,
eftir mynnilegt kvöld, ástin blómstraði á hressó það kvöldið
31.des... -
hann var mjög góður. bara tekið sig til í rólegheitum og farið svo til ömmu og afa í mat, síðan var haldið á brenni með allt liðið og svo beið okkur frábær eftirréttur og skaupið sem fær ekkert komment frá mér í ár.. og svo var komið að því að skjóta upp... og mín var bara róleg skaut upp einni til að kveðja 2006 og var svo bara á barnavaktinni, var með Karítas og ægir óla... sem voru bara býsna brött í öllum þessum látum þrátt fyrir ungan aldur.. en svo þegar fólk fór að slaka á flugveldunum skellti ég mér aðeins til aldísar og spiluðum við stöllur eitthvað frammá nótt..

nýársdagur
leti leti leti... amma og afi komu í mat og svo spiluðum við fjölskyldan aðeins og það koma mér býsna á óvart hvað pabbi vissi mikið.. ehhe ég á bara bráðgáfaðan pabba.. hehe... (mér vantar sko nýjan síma:))

dagar framm að svíðþjóð liðu MJÖG HRAtt, fór í heimsókn í leikskólan og aðeins í hesthúsin en ekki eins mikið og ég vildi...

SVíþjóð

ferðin út gekk mjög vel, svaf ALLA leiðina út og líka í leigubílnum og svo þegar ég kom heim, ég held að eg hafi verið orðin veik því ég var sofnuð kl. 19 um kvöldið.. hehe og hafði sofið allan dagin líka... en  svo á sunnudaginn kom fjölskyldan frá kanarý og erum bara búin að vera að reyna að koma´okkur í réttar horfur- gengur brösulega en kemur:D
en eg held að eg verði að fara að setja þetta inná síðuna

en planið um helgina er að baka pizzu á föstudagin og fara út að borða með Margréti og vinkonu hennar á laug... vá ég get ekki beðið... TAKK fyrir boðið Margrét...

en ég vil óska Jónínu frænku og Gaua fyrir nýja fjölskyldumeðlimin... litlu prinsessuna.. já´hún fæddist þann 7. jan.. daginn eftir að ég fór út... ´:S
en eg hef samt fengið mynd þannig eg ég er ekki alveg útúr... hehe.. en til hamingju ELskurnar mínar,,,


adios...

--- Lilju með hreina síman

- ´þetta er hörkublogg hjá kellu og komment væru nú vel þeginn...
09. janúar 2007 klukkan 01:08
Lilja Dögg Tryggvadóttir
2 athugasemdir
22desember

ekki nema 2.dagar í klakkann

athugið....

ég mun ekki vera í netsambandi næstu 2.daga þar sem það er verið að fara að taka í gegn eitthvað hér heima.. þannig að ef þið þurfið að ná á mér áður en eg kem heim hringið þá í gemsan minn..
en þangað til næst.... hej da...
LiljU Dögg
22. desember 2006 klukkan 03:49
Lilja Dögg Tryggvadóttir
Engin athugasemd
15desember

Týnd

Ég týndi jólastemmingunni minni, getur einhver hjálpað mér að leita?

lúsía- krakkarnir voru að leika lúsíu og þau voru svo flott. 
 Ágúst sá elsti lék í stóru leikriti um lúsi það var ekkert smá flott hjá þeim.
   koma myndir bráðum

myndir komnar inn myndir frá tívolíinu, stansen, hestarnir mínir og 28. okt..
  endilega skoðið

komment.. ég hef ákveðið að hætta að spá í þessum kommentum, ég blogga og þið kommentið ef þið viljið, þar sem eg hef séð að það eru nokkrir sem lesa bloggið mitt og kunna einfaldlega ekki að skrifa.... ég vona bara að þú sért ekki ein/einn af þeim

jól- það eru aðeins 2.dagar í fyrstu jólin mín.
 fyrstu jól hvað er það.. - það er nefnilega þannig mál með vexti að familyan hér í taby fer til kanaría um jólin og þar eru ekki alvöru jól þannig að þau ætla að halda ein hér heima, með fínum fötum, pökkum og jólamat.. ég er svo heppinn að fá að taka þátt í þess þannig að hjá mér verða 2. jól í ár... geri aðrir betur...

gamli stan. það er elsti hluti stokkholms og á laugardaginn ætlum við að taka rúnt þangað.. hlakka til og tek vonandi fullt af myndum handa ykkur,  þá getiði upplifað þetta með mér..

jólapakkar. eins og svo oft áður fær enginn jólapakka frá mér nema fjölskyldan... og er það bara nógu erfitt, ég er búin að kaupa handa pabba og jóni þannig að það skylur eftir mömmu og Guðrúnu .. erfitt erfitt.. einhverjar hugmyndir hvað maður gefur mömmu og einni 12 í jólagjöf

en ætla að fara spjalla við ásdísi og hlusta á jólalög...,
hej da.... Lilju í leit að ´jólastemmingunni

15. desember 2006 klukkan 01:12
Lilja Dögg Tryggvadóttir
3 athugasemdir
11desember

Frábćr helgi

jæja þá er helgin á enda og hefur hún verið frábær í alla staði.. 
 í gær þá buðu Ásdís og Demir mér og krökkunum á jólatónleika í globen http://www.globencity.se/ og var það alveg frábært.. ég skildi ekki allt sem sagt var en það var gaman sjá þetta, öll atriðin og þetta feikna stór hús sem lítur út eins og gólfkúla. en áður en við fórum að sjá tónleikana þá fórum við að skoða í mollinu sem er þar það er risastórt, smáralind er ekkert miða við það...  en þetta var frábært.. alveg ótrúlega gaman... en þegar jólatónleikunum var lokið þá fórum við aðeins í NK og svo tókum við smá rúnt um gamla stan. Gamle Stan er elsti hluti Stokkhólms og einkennist af þröngum götum og margra alda. gömlum húsum.. þannig að þetta var alveg frábært og svo enduðum við þennan frábæra dag á því að fara og legja mynd (last holiday( mjög góð)) og fá okkur tælenskan mat.. og var það mitt fyrsta skipti og læt ég bara vel af því,  og miða ég við réttinn sem ég fékk, en Ásdísar og Demirs var svo sterkur að þau svitnuðu og svitnuður... hehe...

sem sagt þá var þessi dagur í allastaði FRÁBÆR...:D

en dagurinn í dag var sko ekki síðri ef eitthvað var þá var hann þónokkuð betri!
við skelltum okkur´niðri bæ, borðuðum á norrænu safni (held ég) og svo fórum við í græna lund sem er tívolí, stærra en það sem er í smáranum og minna en það sem er í kaupmannahöfn... við skelltum okkur í nokkur tæki og þar á meðal rússibana, sem ásdís sagði að væri barnatæki og mín borgar með glöðugeði og er sátt þangað til að ég sé ferlíkið.. omg. eg er ekki með hjarta fyrir svona en varð auðvitað að fara þar sem axel(6ára) og allir fóru.. hehe myndin af okkur var ekkert smá fyndin hehe en við röltum þarna um fórum í fleyri tæki og unnum í sumum básunum.. ÉG VANN, ÉG VANN.. en svo þegar við vorum búin að þræða tívolíið þá fórum við í dýragarð sem er þarna við næstu götu, við komumst reyndar ekki svo langt að skoða dýrin( sá ekki eitt einasta) en þarna voru ELDGÖMUL hús og hlutir, fólkið sem vann í húsunum var í fötum frá þessum tíma, rosa flott, en þarna voru apotek, bakarí, dagblað, jarnsmiðja, glersmiðja, búð og svo margt fleyra og allt var gamalt, bara notast við það... ( koma myndir frá þessu)
svo þegar við vorum búin að labba í gengum þetta samfélag þá komum við að búðabásum.. helling af þeim, með allskonar, sultur, vöfflubásar og margt fleyra og mitt á milli þessa sölubása ( í miðjunni) var svið(hringur) og´þar í miðjunni var jólatré og svið á endanum og svo dansaði fólk í hringum jólatréið.. og við gátum auðvitað ekki staðist þetta þannig að við skelltum okkur þarna uppí dans... þetta var æði.. AFHVERJU ER EKKERT SVONA Á ÍSLANDI???
en´svo var komin tími að halda heim´á leið, við komum við í blómabúð/grenibúð og keyptum jólatré, komum svo heim og skreyttum það.. .þar sem jólin okkar verða eftir viku. og 2. vikur þangað til við förum, ég heim og þau til kanarí.. þannig að það er ekki mikill tími til að njóta þess en það er mjög flott... fyrsta skiptið sem eg er með alvöru tré... og ég er strax farin að bölsótast útí grenið sem dettur af.. en eg verð að segja að það er viss stemming að hafa alvöru tré:D

en ég held að þetta sé komið gott í bili...
þó ég sé ekki enn viss hvort að ég sé að blogga fyrir sjálfan mig eða ykkur þar sem ég fæ ekki komennt né NEITT..- urr-

en þangað til næst... Lilju Dögg


11. desember 2006 klukkan 01:59
Lilja Dögg Tryggvadóttir
4 athugasemdir

Textareitur

ATHUGIĐ..
Ég hef ákveđiđ ađ lćsa blogginu, en endilega sendiđ mér mail á lilja_dogg@hotmail.com og ţá get ég sent ykkur pw. til baka..

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...